|
Útfararþjónustan hóf starfsemi sína í mai 1997. Á sama tíma var líkhús og kapella tekin í notkun hjá Kirkjugörðum Akureyrar. Útfararþjónustan hefur aðstöðu í Höfðakapellu sem stendur við Kirkjugarðinn við Þórunnarstræti. Þar er mjög góð aðstaða til kistulagninga og fámennra athafna. Einnig góð aðstaða til að taka á móti aðstandendum.
Starfsmenn Útfararþjónustunnar eru 3 til 5 og viðveru tími er frá
kl 9 - 17 virka daga.
|
| |
Starfsemi Útfararþjónustunnar er mjög fjölþætt, ma. sækja látna á dánarstað, aðstoða við val á líkkistu, búa um látna í kistu, aðstoða við undirbúning útfarar, sálmaskrá, blóm, tónlist og tilkynningar svo fátt eitt sé nefnt.
Jafnframt á og rekur Útfararþjónustan tvo sérútbúna líkbíla.
Þá er boðið upp á aðstoð við val og útvegun á legsteinum og krossum á leiði, margar gerðir af ljóskerjum og vösum. Ávalt er reynt að hafa nokkar gerðir af krossum og tvær stærðir af kertum til á staðnum. | |
|